Þjóðhátíð

Ljóst er að reglur voru brotnar sl. sunnudag þegar fólk var flutt með hraðbát og síðan trillu til Vestmannaeyja án björgunarvesta, gegn greiðslu. Trillan sem flutti fólkið til Eyja hefur ekki leyfi til farþegaflutninga en fólkið greiddi 7.000 kr. fyrir ferðina.

Hverskonar rugl er þetta, ekki einu sinni björgunarvesti og síðan varð báturinn eldsneytislaus og þurfti björgunarsveit í Vestmannaeyjum að bjarga fólkinu en þá var báturinn við það að reka uppí klettana og orðinn hálffullur af sjó.  Bubbi Morteins mun hafa verið einn farþeganna og mikið leggur hann á sig til að hlusta á Brekkusöng Árna Johnsen, sem Bubbi hefur sagt að kunni ekki að spila á gítar eða syngja.


mbl.is Farþegar fengu ekki björgunarvesti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta hefur verið hræðileg reynsla fyrir fólkið.  Bubbi getur þá samið enn eitt ljóðið um druhknandi sjómann, og nú frá eigin reynslu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.8.2008 kl. 10:12

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég held að hann ætti að syngja um þessa vitleysu.

Jakob Falur Kristinsson, 6.8.2008 kl. 12:13

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Hræðilegt að skaffa fólkinu ekki björgunarvesti. Ég hélt líka að vanir menn myndu passa uppá eldsneyti. Guði sé lof að allir eru heilir. Höfum misst nógu marga í sjóinn og fyrir átta árum þá var flugslysið í Skerjafirði. Vél að koma frá Vestmannaeyjum með þjóðhátíðargesti.

Lífið er dýrmætt og það þarf að fara að öllum settum reglum.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.8.2008 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband