Fangelsi

160 fangar voru í íslenska fangakerfinu í gær. Þar af sátu 143 í fangelsum landsins en rými þar eru alls 137. 127 þeirra voru að afplána óskilorðsbundna refsingu og fimmtán sátu í gæsluvarðhaldi.

Það er góð nýting á fangelsunum þessa daganna 160 fangar í plássi sem gert er fyrir 137.  Hótel fengi ekki góða dóma sem myndi ofbóka svona.

Ég hef frétt af því að í nýju fjárlagafrumvarpi sé ekki gert ráð fyrir að byggja nýtt fangelsi.  Þá er bara eitt til ráða sem er að hætta að dæma fólk til fangelsisvistar.  Einhver kom með þá hugmynd að setja gáma við Litla Hraun til að hýsa fanga.  Er nú ekki gáfulegra að byggja við á Litla Hrauni frekar en að reisa gámafangelsi.


mbl.is Fangelsin full og tvísett í 8 klefa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jakob. Fangelsismálin hér eru greinilega í miklum ólestri. Það þarf að byggja fleiri fangelsi og þannig að þau standi undir nafni. Fangelsi sem síbrotamenn sækja í að dvelja á að vera liðin tíð. Þegar fangelsin eru orðin betur búin en góð hótel þá er eitthvað mikið að. Fangelsi á ekki að vera aðlaðandi né eftirsóttur staður til að dvelja á. Það þarf að byggja fangelsi þannig að greinamunur sé gerður á þeim sem þar dvelja og eðli brota. Hættulegir síofbeldismenn eiga að vistast í sér fangelsi. Og að lokum: dómskerfið hér er arfa slakt.

Aðalbjörn Steingrímsson 24.9.2008 kl. 09:52

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála.

Jakob Falur Kristinsson, 25.9.2008 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband