Ofurlaun

Nú eru bankastjórar ekki lengur á ofurlaunum, en samt eru þau ekki horfinn að fullu.  Heldur hafa þau færst til og í dag er tekjuhæsti embættismaður þjóðarinnar Davíð Oddsson með 1.8 milljónir á mánuði.  Sami maðurinn og mest talaði um ofurlaun hjá viðskiptabönkunum.  En af því þetta er Davíð þá er allt í lagi.  Maðurinn sem sinnti ekki sínu starfi sem skildi og til stendur að reka fyrir vanrækslu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þú veist eitthvað meira en við Jakob, ég hef hvergi séð togað uppúr stjóra í þessum nýju bönkum hver launin eru?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 18.10.2008 kl. 09:07

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Launin hjá bankastjórum nýju bankanna eru mjög hófleg, það veit ég þótt vitlaus sé.

Jakob Falur Kristinsson, 18.10.2008 kl. 10:18

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þó þær segi að þær séu á lægri launum en hinum var greitt segir það mér lítið um sanngirni eða ofurlaun.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.10.2008 kl. 15:11

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Tími ofurlauna er liðinn Hafsteinn og kemur vonandi aldrei aftur.

Jakob Falur Kristinsson, 20.10.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband