VG

Mynd 481679 Þingflokkur vinstri hreyfingarinnar græns framboðs leggur til að utanríkisráðherra verði falið að tilkynna breskum stjórnvöldum og yfirstjórn NATO að fyrirhugað loftrýmiseftirlit Breta við ísland í desember verði fellt niður. Þingflokkur VG hyggst leggja fram þingsályktunartillögu þessa efnis á Alþingi við fyrsta tækifæri.

Við eigum auðvitað ekki að taka í mál að Bretar sem nánast eru búnir að lýsa yfir stríði á hendur okkur, komi nálægt okkar vörnum.  Það væri jafn líklegt að þeir réðust á okkur eins og að þeir verðu okkur.  Bretar, Nei takk.


mbl.is VG vill ekki gæslu Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

SAMmála

Ómar Ingi, 24.10.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Kyrrsetjum þoturnar þeirra þegar þær koma í Desember og höldum þeim sem tryggingu fyrir greiðslu stríðsskaðabóta. Ef þeir gerast svo djarfir að svara með frekari valdbeitingu þá kemur til sögunnar varnarsamningur okkar við USA og ákvæði í stofnsáttmála NATO sem skyldar öll ríki bandalagsins til að koma okkur til varnar. Fyrst þeir vilja enn eina alþjóðadeiluna við okkur þá skulum við bara gefa þeim hana!

Guðmundur Ásgeirsson, 24.10.2008 kl. 13:33

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Steingrímur Joð er og hefur lengi verið minn maður.

Rúna Guðfinnsdóttir, 24.10.2008 kl. 16:24

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Við lýsum bara yfir stríði á hendur Bretum og eins og Guðmundur bendir á eru Bandaríkin skyldug að verja okkur samkvæmt samningum.

Jakob Falur Kristinsson, 24.10.2008 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband