Allt þykist þessi maður vita

Davíð Oddsson. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins, að sennilega hafi það haft mikil áhrif á bresk stjórnvöld í kjölfar íslenska bankahrunsins, að fé var flutt úr dótturfélagi Kaupþings, sem laut breskum lögum.

Af hverju lét hann ekki ríkisstjórnina vita á sínum tíma eða er hann eins og svo margir aðrir bara vitur eftir á.


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga F

"....eða er hann eins og svo margir aðrir bara vitur eftir á." Ertu þá að meina að seðlabankastjóri eigi að sjá framtíðina? Hann er jú mannlegur eins og við hin... þó hann sé bankastjóri Seðlabankans.

Helga F, 24.2.2009 kl. 20:55

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég tek eftir að seðlabankastjóri vill ekkert muna forsætisráðherratíð sína...sem var löng?...stoltur?...hann setti þessar “reglur ” seðlabankans sjálfur (og lagði niður þjóðhagsstofnun).

Er allavega að hugsa um “Sauruman” í Hringadróttinssögu núna og bara veit (18 ára reynsla ) að mjög margir Íslendingar halda að “þetta sé” hálmstráið?

...so help me God!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 24.2.2009 kl. 21:09

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alltaf sama sagan með hann Davíð að ef hann er gagnrýndur þá reynir hann að snúa umræðunni um að hann sé ofsóttur af Baugsfjölmiðlum.  Davíð Oddsson lagði niður í bræðikasti Þjóðhagsstofnun og hann ber fulla ábyrgð á lögum um Seðlabanka Íslands og reyndar allri efnahagsstjórn sl. 18 ár.  En nú þykist hann vera eins og hvítþveginn engill.  Eini maðurinn á Íslandi sem sá allt fyrir og allir treysta að eigin sögn.  Ekki vantar sjálfsálitið hjá manninum.

Jakob Falur Kristinsson, 25.2.2009 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband