Árvakur hf.

Þegar Íslandsbanki hóf söluferlið á Árvakri hf. útgáfufélagi Morgunblaðsins,lýsti Birna Einarsdóttir bankastjóri því yfir að allt söluferlið yrði gegnsætt og væri til marks um ný vinnubrögð í bankanum.  En þegar gengið var að tilboði fjárfestahóps undir forustu Óskars Magnússonar var ekki einu sinni hægt að fá uppgefið hvað tilboðið væri hátt.  Þó hefur lekið út úr bankanum að Íslandsbanki muni við þessa sölu afskrifa a.m.k. einn milljarð.  Nú er þessi banki að fullu í eigu ríkisins svo það verða skattgreiðendur sem koma til með að borga þessar afskriftir.

Athygli vekur að í þessum hópi eru nokkrir útgerðarmenn, t.d. Þorsteinn Már Baldvinsson einn aðaleigandi Samherja hf. og fv. stjórnarformaður Glitnis, Guðbjörg Matthíasdóttir aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Pétur H. Pálsson sem er stór eigandi í Vísir hf. í Grindavík.  Nú hef ég ekkert við það að athuga að útgerðarmenn kaupi dagblað ef þeir hafa efni á því.  Það er ekki langt síðan að útgerðarmenn kröfðust að fá niðurfellingu á erlendum skuldum sínum eða að fá að greiða þær á því gengi sem var fyrir bankahrunið.  Nú vaknar sú spurning hvar þessir aðilar fá peninga til að kaupa þetta blað.  Er enn verið að veðsetja aflaheimildir til að taka þátt í fyrirtækjabraski?  Hvernig verður þá hægt að réttlæta það að útgerðarmönnum verði rétt hjálparhönd við sinn rekstur.  Á að velta meiri skuldum á íslenska skattgreiðendur?, sem flestir eru í bullandi vandræðum með sín fjármál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það hlýtur að koma í ljós í öllu þessu gegnsæi hjá henni Birnu Einarsdóttur.

Jakob Falur Kristinsson, 27.2.2009 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband