Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Það verður ekki af henni tekið að hún er klókur stjórnmálamaður hún Ingibjörg Sólrún.  Nú ætlar hún að bjóða sig fram til formanns flokksins og til Alþingis.  En samt ætlar hún að nýta sér vinsældir Jóhönnu Sigurðardóttur og bjóða hana fram sem forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar.  Þetta mun skila sér í auknu fylgi og kæmi mér ekki á óvart að Samfylkingin fengi hreinan meirihluta á Alþingi í næstu kosningum.
mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Vel ígrundað hjá þér. Ekki það að ég sé hlyntur samfó, en þú hefur rétt fyrir þér í því, að þetta er klógt af Ingibjörgu að nýta sér vinsældir Jóhönnu, og halda sig til hlés, en halda eftir sem áður utan um stjórn flokksins.

hilmar jónsson, 28.2.2009 kl. 11:55

2 Smámynd: Ingvar

Ráðabrugg Ingibjargar er svo fyrirsjánalegt, Jóhanna er gamalmenni orðin 67 ára oh hennar tími r löngu liðinn. Ingibjörg nýtur ekki trausts svo hún notar þá Jóhönnu Svo hættir Jóhann um áramótin og Ingibjörg verður forsætisráðherra.

Á meðan Samfylkingin er í stjórn verður aldrei hreift við verðtryggingu, eignir verða misskunnarlaust teknar af fólki og þeim boðið að leigja þær aftur af ÍBLS.

Ingibjög ætlar ekki að axla ábyrgð. Enda lítur hún ekki á almenning sem þjóðina.

Þið eruð ekki þjóðin..

Ingvar

Ingvar, 28.2.2009 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband