Afsökun

Ásta Möller, alþingismaður Ásta Möller, þingkona Sjálfstæðisflokksins, baðst í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins afsökunar á því að hafa ekki staðið sig betur sem kjörinn fulltrúi, þegar bankakerfið stækkaði ört og að lokum hrundi. Ásta sagði gagnrýni á flokkinn eiga rétt á sér.

Það var mikið að einhver biðst afsökunar á störfum sínum og mættu fleiri taka Ástu sér til fyrirmyndar.  Þetta kemur reyndar í kjölfar mikillar gagnrýni á forustumenn Sjálfstæðisflokksins, sem fram kemur í drögum að skýrslu um starf flokksins.  Hinsvegar sá Geir H. Haarde ekki ástæði til að biðjast afsökunar í fréttum í kvöld.  Heldur gagnrýndi hann nefndarmenn og sagði að þeir ættu að líta til framtíðar en ekki velta sér upp úr fortíðinni.  En mistök fortíðarinnar hljóta að verða að skoðast til að hægt sé að móta framtíðina.


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já nú fara afsakarnirnar að streyma inn enda styttist í prófkjör og kosningar. Það hefur nú rignt upp í nefið á þessu fólki fram að þessu og enginn talið sem bera neina ábyrgð.

Guðmundur 2.3.2009 kl. 20:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg rétt Guðmundur þetta er bara vegna kosninganna.

Jakob Falur Kristinsson, 2.3.2009 kl. 21:20

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Auðmýk? kannast ekki við það úr orðabók Blöndals

Finnur Bárðarson, 2.3.2009 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband