Ráðgjöf

Ríkisstjórnin mun að öllum líkindum óska eftir ráðgjöf Evu Joly fyrrum yfirrannsóknardómara í Frakklandi um rannsókn efnahagsbrota í tengslum við bankahrunið. Eva Joly hitti ráðherrana í hádeginu í dag. Fjármálaráðherra sagði hana besta gest sem hægt væri að hugsa sér.

Það verður að segja þessari ríkisstjórn til hróss að hún hefur þó vit á því að leita sér aðstoðar í erfiðum málum.  Ólíkt fyrri stjórn þar sem ráðherrar töldu sig vita allt best og allt getað.


mbl.is Eva Joly ráðleggur ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir nokkrum dögum valt flutningabíll hlaðinn fiski á Vestfjörðum en veit ekki hvort þessi hefur verið með fisk. Þess vegna spyr ég eins og fávís maður. Hvaða hagfræði er í því að flytja fisk á  bílum þvers og kruss um landið um hávetur?

Olgeir 9.3.2009 kl. 15:44

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það getur oft verið hagkvæmara að flytja fisk til verkunnar á einhvern stað, frekar en að láta fiskiskipið sigla á staðinn töl löndunar.  Flestir sem eru að gera út vilja vinna sinn fisk sjálfir.  Svo hefur mikið breytst með tilkomu fiskmarkaða víða um land.  Fiskverkandi sem ekki er með útgerð getur nú fengið fiskinn nánast hvar sem er á landinu.  Sem dæmi get ég nefnt að þegar ég var í útgerð þá vorum við á haustinn á netaveiðum á Vestfjarðarmiðum og lönduðum öllum afla á fiskmarkað á Flateyri.  Sá fiskur sem átti að fara suður fór beint í flutningabíl og var ekið um nóttina suður og þannig var fiskverkandinn sem keypti afla búinn að fá fiskinn til sín næsta morgun þegar vinnsla var að hefjast.

Jakob Falur Kristinsson, 9.3.2009 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband