Magnús Þór

Magnús Þór HafsteinssonMagnús Þór Hafsteinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum, á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkishólmi 13. og 14. mars. Magnús Þór, sem er núvaraformaður Frjálslynda flokksins varð í 4. sæti í póstkosningu hjá Frjálslynda flokknum í NV-kjördæmi nýverið.

Nú lýst mér ekki á það hjá þessum flokki.  Magnús er auðvitað svekktur að hafa einungis náð 4. sætinu í póstkosningu flokksins í Norðvesturkjördæmi, en hann stefndi á 2. sætið það sæti fékk hinsvegar Sigurjón Þórðarson og 3. sætið Ragnheiður Ólafsdóttir.  Það verða örugglega mikil læti á landsfundi flokksins í Stykkishólmi í dag og á morgun.  Auk Magnúsar, hefur Guðjón Arnar Kristjánsson, sitjandi formaður óskað eftir endurkjöri.  Einnig er í kjöri til formanns Guðni Halldórsson. 

Nú held ég að endanlega verði gengið frá flokknum og er alvarlega að hugsa um að segja mig úr honum og ganga í Samfylkinguna.  Það er eins og ekkert geti gengið upp hjá Frjálslynda flokknum.  Eilíf átök og deilur milli manna.  Ég efast um að þessi flokkur fá mann kjörin á Alþingi í kosningunum.


mbl.is Magnús Þór stefnir á formanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varla kennir þú Jóni Magnússyni um þetta eða liðinu hans.

BB 13.3.2009 kl. 10:53

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hann átti nú sinn þátt í deilum innan flokksins, þótt hann komi ekki nálægt þessu síðastnefnda.

Jakob Falur Kristinsson, 13.3.2009 kl. 11:00

3 identicon

Vertu hjartanlega velkominn í Samfylkinguna. Frjálslyndiflokkurinn er á einhverri óskiljanlegri vegferð. Magnús skaut sig í fótinn þegar hann fór að bísnast yfir einstæðum mæðrum frá írak sem fluttu síðan á Akranes sem flóttamenn. Ég held að fólki hafi blöskrað. Ég verð samt að viðurkenna að það hefur verið gaman að fylgjast með Magnúsi á þingi. Hann er harður ef hann þarf og þess utan vel skynsamur. Ég óska honum alls hins besta, en ég held að hans pólitíska líf sé búið. En enn og aftur, vertu velkominn í Samfylkinguna.

Valsól 13.3.2009 kl. 11:00

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir.

Jakob Falur Kristinsson, 13.3.2009 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband