Heilbrigðisráðherra

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra „Það má ekki gerast, en er því miður að staðreynd, er að ummönnunarstéttum, kvennastéttum, er vísað út á gaddinn en lausna leitað þar sem karlastéttir sitja í forgrunni,“ sagði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, í ávarpi sínu á morgunverðarfundi heilbrigðisráðuneytisins í morgun.

Það er annað líf að sitja í ráðherrastól og þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, en að vera bara óbreyttur þingmaður og geta gaggrýnt allt sem gert er.  Annars finnst mér að ráðherrar VG hafa komið á óvart hvað þeir standa sig vel í erfiðum málum.


mbl.is Ögmundur: Viðfangsefnið er tröllaukið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: P.Valdimar Guðjónsson

Sæll Jakob.

Ögmundur vill vera vinur allra starfsmanna í heilbrigðisgeiranum sem hann var fyrir til skamms tíma fulltrúi fyrir.  Það gengur varla lengi í þessu embætti.

Hann er því í klemmu, en ég minnist varla nokkurs í þessu erfiða starfi síðustu árin þar sem þetta embætti var stökkpallur til sérstakra vinsælda.     Hvað þá nú með þessa sjö milljarða hangandi yfir sér í sparnaði.

Býsna mikið auðveldara um að tala, en í að komast.

P.Valdimar Guðjónsson, 19.3.2009 kl. 11:13

2 identicon

Þurfa menn að vera óvinir til að vinna óvinsæl verk?

Íslenskir ráðamenn  þurfa samstöðu með fólkinu til að vinna þau óvinsælu verk sem framundan eru.

Með vinum vinnur maður kraftaverk!

Þórður Runólfsson 19.3.2009 kl. 11:24

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hann er búinn að sýna að þetta getur alveg farið saman.  Þetta er eitt erfiðasta ráðherraembættið í ríkisstjórn og hefur alltaf verið.

Jakob Falur Kristinsson, 19.3.2009 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband