Formannsframboð

Það mun verða harður slagur í formannsframboði Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans um næstu helgi.  Nú hefur Kristján Þór Júlíusson bætts í þann hóp.  En flestir reiknuðu með að Bjarni Benediktsson yrði nánast sjálfkjörinn.  Þetta framboð Kristjáns mun kalla á fleiri framboð t.d. Illuga Gunnarssonar, sem sigraði í prófkjöri flokksins um síðustu helgi.  Eins væri Guðlaugur Þór líklegur í framboð.  Þetta mun þýða að atkvæði dreifast mikið og nánast happadrætti hver verður formaður, en ég veðja þó á Bjarna Benediktsson sem mun njóta þess að vera af hinni kunnu Engeyjarætt, en sú ætt hefur löngum verið valdamikil í Sjálfstæðisflokknum.

Kristján Þór nýtur hinsvegar kvótagreifanna í flokknum en hann hefur verið mikill talsmaður þeirra, tók t.d. þátt í þegar Guðbjörg ÍS-46 var seld frá Ísafirði til Akureyrar með bolabrögðum.  En hann hafði áður verið bæjarstjóri á Ísafirði en var orðin bæjarstjóri á Akureyri.


mbl.is Kristján Þór tilkynnir um framboðsáform
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Sæll Jakob.

Ég tel að Kristján fái ekki mikinn stuðning í formannslagnum.

Jens Sigurjónsson, 22.3.2009 kl. 15:14

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei ég er sammála því að hann fái ekki mikinn stuðning.  Það er fyrir löngu búið að ákveða að Bjarni Benediktsson verði næsti formaður og kosningin á landsfundinum er bara sýndarmennska.

Jakob Falur Kristinsson, 22.3.2009 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband