Hættir

Ásgerður Flosadóttir Ásgerður Flosadóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, hefur sagt sig úr flokknum og um leið öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Segir hún í tilkynningu að ástæðan sé sú að hún sjái ekki neinn vilja til breytinga innan flokksins. Telur hún að flokkur sem geti ekki haft stjórn á innri málefnum sé ekki nægjanlega trúverðugur til að taka þátt í þeirri endurreisn sem sé framundan í íslensku þjóðfélagi.

Það á ekki af þessum flokki mínum að ganga, eilíf vandræði og óánægja.  En vissi Ásgerður þetta ekki þegar hún var kosin varaformaður flokksins fyrir viku síðan.


mbl.is Ásgerður hættir í Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Hún vissi þetta vel.

Ætli hún hafi bara ekki verið að átta sig á því að þessi flokkur þurrkast út í næstu kostningum.

Það er til lítils að vera varaformaður í flokki ... sem kemst ekki á þing.

En þarna sýnir hún kannski soldið hvernig hún er. Hvernig lítur þetta út fyrir flokkinn núna rétt fyrir kosningar. Afhverju gerði hún þetta ekki eftir kosningar. Þarna gagnrýnir hún flokkinn ítrekað.

Vonbrigði.

ThoR-E, 23.3.2009 kl. 11:44

2 identicon

En hvaða starfsmannabreytingar á hún eiginlega við?
og hvaða breytingar vildi hún?

afhverju fáum við ekkert að vita það.

Arnar 23.3.2009 kl. 11:45

3 Smámynd: ThoR-E

Það er spurning hvort hún hafi viljað nota nýfengið vald sitt til að losa sig við einhvern "óæskilegan" ... en kapteinninn ekki tekið það í mál.

Hvað veit maður. Hvað er hægt að segja við svona.

Varaformaður í viku ... og allt er ekki gert eins og hún segir.. þá hættir hún bara strax.

En sú einurð.

ThoR-E, 23.3.2009 kl. 11:50

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvort sem flokkurinn kemst á þing eða ekki skiptir ekki máli í þessu sambandi.  Hún átti að gera þetta áður en hún var kosin varaformaður.

Jakob Falur Kristinsson, 23.3.2009 kl. 12:01

5 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ásgerður á að einbeita sér að Fjölskylduhjálpinni og hætta þessu veseni í pólitík.

Addi Kidda Gau eða hvað hann heitir gæti gefið út sögu flokksins fyrir næstu jól "Ástir og örlög, úrsögn og innganga" ritröð 1-5 bindi.

Ég hlakka áfram til að heyra fleiri fréttir af "flokknum"

Guðmundur St Ragnarsson, 23.3.2009 kl. 12:06

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Því miður er ég hræddur um að fleiri slæmar fréttir eigi eftir að koma á næstunni.

Jakob Falur Kristinsson, 23.3.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband