Ræddu um makríl

 Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, og Helge Pedersen, sjávarútvegsráðherra, Noregs, ræddu makrílveiðar Íslendinga á símafundi í hádeginu í dag. Petersen hefur tekið undir kröfu norskra útvegsmanna um að afurðir úr makrílveiðum Íslendinga verði sniðgengnar.

Jæja það er gott að einhver hreyfing er á þessu vandamáli og vonandi finnst lausn sem fyrst.  Ég hef fulla trú á að Steingrími J. Sigfússyni takist að íslendingum verði leyft að vera með í ákvörðun á makrílkvóta.  Það kláraði Einar K. Guðfinnsson ekki áður en hann hætti.


mbl.is Ræddu um makrílveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Hann er með góð sambönd í Noregi og kann að tala við þá. Vona að þetta leysist friðsamlega.

Héðinn Björnsson, 25.3.2009 kl. 14:56

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ísland á að hætta við veiðarnar, allavega skera mikið niður.  Niðrí sona 20.000 tonn í mesta lagi.

Þetta er bara vitleysisgangur í LÍÚ.  Sýnir hve þeir eru sterkir að SJS hlýðir þeim bara.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 25.3.2009 kl. 15:30

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það væri kannski rétt að hætta veiðum á meðan verið er að ræða við Norðmenn.

Jakob Falur Kristinsson, 25.3.2009 kl. 15:43

4 identicon

You Icelanders have killed just about everything in the sea around you.....Why not kill off the Mackrell in your greed.........You should be ashamed of what you have done over the last 50 years......Cod, Shrimp, Haddock, Whale and many more.............Shame on you........

Fair Play 26.3.2009 kl. 03:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband