Björn Bjarnason

Björn Bjarnason. Björn Bjarnason fer hörðum orðum um Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í pistli á heimasíðu sinni í dag, og segir að full ástæða sé fyrir íslensku þjóðina að kvíða því, sem í vændum er, ef Jóhanna haldi áfram sem forsætisráðherra að kosningum loknum með Steingrím J. Sigfússon sem fjármálaráðherra sér við hlið.

Mér er nokkuð sama hvaða álit Björn Bjarnason hefur á Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni.  Ef eitthvað er að marka Björn Bjarnason þá á Jóhanna heiður skilið fyrir sína framgöngu á vettvangi stjórnmálanna síðustu vikur og mánuði.  Mikið er ég fegin að Björn hættir nú á þingi, því hann er með þeim allra leiðinlegustu þingmönnum sem setið hafa á Alþingi, frá því að ég fór að fylgjast með stjórnmálum.


mbl.is Þvermóðska Jóhönnu gerði hana að forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er líka handviss um að Birni er nokk sama hvaða álit þú hefur á heilagri Jóhönnu og honum sjálfum.  Þú hefur nú samt þörf á að skrifa þig frá þessu öllu saman þ.a. þér er ekki alveg sama.

Björn stóð sig vel sem menntamálaráðherra - hann má alveg eiga það.  En þú hefur sennilega ekki verið farinn að fylgjast með þá.

Grétar 20.4.2009 kl. 16:49

2 identicon

Nei ég man ekki eftir neinu sérstökum afrekum frá Birni Bjarnasyni.

En hann hefur nú alltaf verið svo hógvær blessaður.

En ég tek undir það maðurinn hefur verið frámunalega leiðinlegur.    

Að sjá hann, lesa eftir hann og ég tali nú ekki um að reyna að hlusta á hann, það er "tortyr".

j.a. 20.4.2009 kl. 17:25

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég þekki Björn ekkert nema af fréttum og viðtölum og mér hefur alltaf maðurinn hundleiðinlegur og hans málflutningur er alltaf eins og Kalda-stríðið sé til staðar.

Jakob Falur Kristinsson, 21.4.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband