Svínaflensan H1N1

Nú hefur þessi flensa borist til Íslands og enginn veit hvernig það kann að enda.  Það var í fréttum í gær að hópur útskriftarnema við Háskóla Íslands væri á leið til Mexíkó í skemmtiferð og ástæða fyrir því að ekki var hætt við ferðina var sú að búið var að borga hana og hún fékkst ekki endurgreidd.

Til hvers er fólk að taka óþarfa áhættu, því nokkuð víst er að þessi hópur kemur allur veikur til baka.


mbl.is Var bara tímaspursmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju segirðu að það sé nokkuð víst að allir komi veikir heim? Svínaflensan er bara á ákveðnum svæðum í Mexíkó. Fyrir utan það eru örugglega margar aðrar tegundir af inflúensum á svæðinu sem þau gætu alveg eins smitast af, rétt eins og hvar annars staðar. Það er ekkert merkilegt við H1N1 nema að fjölmiðlar ákváðu að gera hana að frétt. Inflúensufaraldrar eins og þessi eru alltaf í gangi. Hvenær fékkstu síðast flensu? Hún kom næstum örugglega úr fuglum upprunalega í gegnum búfénað eins og flestar flensur. Hún hefði allt eins getað verið flensan sem komst í fréttir. Í alvöru, þetta er bara hræðsluáróður.

Kári 23.5.2009 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband