Allt að veði

Þótt ýmsir lögmenn segi að með Icesave-samningnum séu allar eigur íslenska ríkisins lagðar að veði, hvar sem er í heiminum.  Er ekki þar með sagt að það sé rétt, því eins og ég skil þennan samning eru það eignir Landsbankans sem lagðar eru að veði hvar sem er í heiminum.  Stjórnarskráin hindrar það að hægt sé að ganga að eigum íslenska ríkisins vegna þessa samnings.
mbl.is Allar eignir ríkisins lagðar að veði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvað í stjórnarskránni hindrar það? Í henni stendur:

"Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild."

Þannig er með einfaldri lagabreytingu hægt að framselja allar eigur ríkisins (og hver er svo skilgreiningin á fasteign?). Þá kveður samningurinn, eftir því sem fram hefur komið á vefmiðlum, á um að íslendingar afsali sér öllum slíkum rétti...

Sigurður E. Vilhelmsson 18.6.2009 kl. 11:13

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er nú ekki vel að mér í stjórnarskránni og held nú að engum þingmanni detti í hug að setja þannig lög að veðsetja allar eignir ríkisins.  Ef slíkt er inn í Icesave-samningnum verður hann aldrei samþykktur á Alþingi.

Jakob Falur Kristinsson, 19.6.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband