Gjaldþrot

Þá er Íslensk afþreying hf. orðin gjaldþrota, þetta var áður hluti af 365 miðlum en við kaup Jóns Ásgeirs Jóannessonar á 365 var þessi hluti skilin eftir í sérstöku félagi og stór hluti af skuldum 365.  Nú getur Jón Ásgeir leikið sér að vild með 365 og Fréttablaðið og hirt út úr því félagi allt sem verðmætt er og síðan sett félagið í gjaldþrot.

Eru enginn takmörk á því hvað þessir auðmenn Íslands fá að ganga lengi lausir og skilja allstaðar þar sem þeir koma við, eftir sig sviðna jörð og skuldir sem falla að lokum á skattborgara þessa lands.


mbl.is Íslensk afþreying gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Nei það eru greinilega engin takmörk fyrir viðskiptasnilld þessara manna.  Að geta endalaust stofnað ný félög um eignir og skilið skuldir eftir í þeim gömlu og haldið þannig áfram. Þetta er því miður ekki bara Ísland gærdagsins.

Ævar Rafn Kjartansson, 26.6.2009 kl. 12:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það virðist ekki vera NEINNáhugi hjá stjórnvöldum að þessir menn séu stoppaðir eða nokkuð gert til að hafa hendur í hári þeirra (sem ætti nú að vera frekar auðvelt í tilfelli Jóns Ásgeirs). Skyldi ástæðan vera sú að þeir myndu taka svo MARGA með sér í fallinu?

Jóhann Elíasson, 26.6.2009 kl. 12:16

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það eru öll framlög þessara manna í flokkssjóði stjórnmálaflokkanna, sem veitir þeim tryggingu fyrir afskiptaleysi stjórnvalda.

Jakob Falur Kristinsson, 27.6.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband