Atvinnulausir

Kristján Gunnarsson formaður Starfsgreinasambandsins segir að atvinnulausir verði fyrir barðinu á neikvæðri umræðu um bótasvik og allir séu grunaðir um að stela og svíkja. Hafa verði í huga að atvinnulausir séu ekki skrokkar sem hægt sé að taka af atvinnuleysisskrá eftir pöntun.

Hún getur oft verið undarleg íslenska þjóðin í sinni afstöðu til ýmissa mála. Núna er hún að beina spjótum sínum að atvinnulausu fólki og telur að það nenni ekki að vinna.  Svipaðar skoðanir hafa áður komið fram gagnvart öryrkjum.

Það má vel vera að sumir hafi það betra að lifa á atvinnuleysisbótum en fara í vinnu, þar sem bæturnar eru miðaðar við lægstu taxta á vinnumarkaði.  En lausnin á þessum vanda fellst ekki í því að lækka bæturnar, heldur þarf að hækka lægstu taxtanna á vinnumarkaðnum.

Auðvitað vilja allir frekar vera í vinnu en atvinnulausir, því það er ekkert sældarlíf að lifa á þessum bótum.  Fyrir utan það að atvinnulaust fólk einangrast oft og tekur ekki virkan þátt í þjóðlífinu, það sama gildir um öryrkja.  Ég sem öryrki vildi gjarnan losna við það ef hægt væri og ekki óskaði ég eftir að lenda í slysi, sem gerði mig að 75% öryrkja.

Þetta eru fordómar, sem ekki eru sæmandi siðmenntaðri þjóð.


mbl.is Atvinnulaust fólk-ekki skrokkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hVERJU ORÐI SANNARA,,,, BÚIN AÐ SITJA Í SÓFANUM Í 4 MÁNUÐI,,,,,,,,BÍLLIN FYRIR UTAN BENSÍNLAUS,,,,,,,,,,,,,,,

SH 26.8.2009 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband