Greiðsluvandi fólks

Heimilin eru ekki aflögufær og þau geta ekki borið hærri álögur, að því er segir í yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Samtökin velta fyrir sér hvers vegna þurfi að bjarga þremur bönkum þegar einn dugi fyrir landið. „Af hverju er eina lausn stjórnvalda að íþyngja heimilunum með hærri sköttum, þegar allir sjóðir heimilanna eru þegar þurrausnir?"

Ég get tekið undir þetta álit, því nú verður með hraði að bjarga heimilum þessa lands.  Annars blasir við fjöldagjaldþrot og fólksflótti frá Íslandi.  Hvað eru bankar og Íbúðalánasjóður, betur settir ef þeir eignast nokkur hundruð íbúðir, frekar en að aðstoða fólk við að greiða sín lán.  Stór hluti af þessum íbúðalánum eru töpuð að miklu leyti og eins gott að horfast í augu við þá staðreynd strax.

 


mbl.is Segja heimilin ekki geta meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég skil ekki hugmyndina. Heimilin geta ekki borgað. En ríkið á að borga.

Hvaðan heldur fólk að peningar ríkisins komi? Úr hatti? 

Arndís 16.9.2009 kl. 10:26

2 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Arndís - hvaðan heldur þú að peningar heimilanna komi ? Úr hatti ?

Axel Pétur Axelsson, 16.9.2009 kl. 10:32

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ríkið á ekkert að þurfa að borga bara viðurkenna að lán séu töpuð.  Þegar gert var upp á milli nýju bankanna og þeirra gömlu var allt þetta lánasafn afskrifað um 50%.  Það var sem sagt gert ráð fyrir að 50% íbúða- og bílalána væru í raun töpuð.  Það er þessi mismunur sem á að nota til að afskrifa lánin, láta þau ganga til skuldara en ekki til að styrkja bankanna.

Jakob Falur Kristinsson, 16.9.2009 kl. 11:02

4 identicon

http://skorrdal.is/utgafa/baekur/lydraedi_fjoldans.html

Stjórnvöld vinna ekki fyrir almenning - og hafa ekki gert í mjög langan tíma! Því fyrr sem fólk áttar sig á því, þeim mun betra! En fólk er víst ekki að opna augun - því líkar nauðgunin...

Skorrdal 16.9.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband