Uppsagnir

Fyrirtækið Míla ehf. hefur ákveðið að segja upp 19 manns, níu á landsbyggðinni og 10 á höfuðborgarsvæðinu. Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu, segir að þessi ákvörðun sé tilkomin vegna þess að lítið sé um að vera í byggingariðnaði og það hafi áhrif á starfsemi Mílu.

Það kemur fram að Míla ehf. hafi samið við fyrirtækið Snerpu á Ísafirði um að þjónusta alla Vestfirði og starfsemin sem hefur verið á Patreksfirði verði lögð niður.   Eins á að leggja niður starfsemi á Húsavík, Stykkishólmi og Borgarnesi.  Reynt verður að semja við heimamenn á hverjum stað um þjónustu, annars verður þjónustan frá Reykjavík.  Það er eins gott að þetta drasl bili ekki mikið, því hálft árið er ekki fært milli suðurhluta Vestfjarða og Ísafjarðar.  Er þetta fyrirtæki ekki einhver angi úr Skiptum ehf. sem á Símann hf.  Mikið hlýtur að vera erfiður rekstur hjá þessu fyrirtæki ef laun 19 manna skipta öllu um afkomuna.  Að vísu mun launakostnaður lækka en á móti kemur að ferðakostnaður starfsmanna stóreykst. 

Enn eitt dæmið úr einkavæðingunni frægu,  sem öllu átti að bjarga.


mbl.is 19 sagt upp hjá Mílu ehf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki lýst mér á þessar uppsagnir hjá Mílu þetta verður til þess að þeir sem búa á þessu svæði verða símalausir svo vikum skiptir ef eitthvað bilar. Þetta hefur nú verið nógu slæmt þó ekki sé verið að fækka fólki.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir 11.10.2009 kl. 19:15

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þeir eru nú ekki að hugsa mikið um það þessir herramenn.  Líta bara á vegakortið.  Þar sjá þeir auðvita að það er lítið lengra frá Ísafirði til Patreksfjarðar, en frá Reykjavík til Hellu eða Eyrarbakka og Stokkseyrar.

Jakob Falur Kristinsson, 12.10.2009 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband