Kanada

Vaxandi óánægja ríkir meðal Íslendinga og atvinnurekenda í Manitoba í Kanada vegna samkomulags kanadískra og íslenskra yfirvalda um að menntaðir, atvinnulausir Íslendingar fái að koma til starfa í Manitoba. Ferlið er sagt of flókið og taka of langan tíma.

Þá er það orðið ljóst að atvinnulausir íslendingar fara ekki til Kanada á næstunni.  Einhver fljótfærni virðist hafa verði við gerð þessa samkomulags á sínum tíma.  Ég held að Norðurlöndin séu miklu álitlegri kostur fyrir atvinnulausa íslendinga, frekar en Kanada.


mbl.is Flókið ferli veldur því að Íslendingar halda ekki til Manitoba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinbjörn Ragnar Árnason

  Íslandi er stjórnað með sameiginlegu ábyrgðarleysi stjórnmálaflokkanna. Getur verið að einn fárra möguleika fyrir sigraða þjóð sé að lýsa yfir hugsanlegu gjaldþroti og fá nýja kennitölu á Ísland. Íslendingar geta þá beint fyrirhuguðum samningaviðræðum við Evrópusambandið til ríkisstjórnar Kanada og/eða með inngöngu í Nafta? Íslensk stjórnvöld hafa ekki skoðað þann möguleika á að semja við Kanada, þeir stefna frekar á að reyna að takast í hendur við kreppta hnefa þjóðarinnar og í Evrópusambandið skal fara, sama hvað það kostar Íslendinga. Ég er sannfærður í dag að íslensku stjórnmálaflokkarnir eru mesta vandamál þjóðarinnar.

Brotlending þjóðarbúsins er að mestu leyti stjórnmálaflokkunum að kenna. Þjóðin mun þó ekki gleyma stelsjúkum bankamönnum og útrásarvíkingum. Helst dettur manni í hug að ríkisstjórn Geirs Haarde hafi sett brodd á barka eftirlitsaðila meðan reynt var að redda klúðrinu korter í hrun. Ef til vill trúðu Geir, Ingibjörg og aðrir í klappliðinu á að með því að draga magann inn, þegar stigið er á vigt, þá myndi útkoman verða betri fyrir Íslendinga.

Búið er að þjóðnýta skuldir einkavinavæddu bankanna yfir á íslenskan almenning. Skuldaklafar sem hellast yfir almenning og virðist engan endi ætla að taka. Ábyrgð síðustu ríkisstjórna er mikil, gáleysi og tómlæti kann að varða við landslög að mínu mati. Hver ber ábyrgð? Enginn, því Íslandi er stjórnað sameiginlega með ábyrgðaleysi stjórnmálaflokkanna.

Þurfum við Íslendingar ekki að kalla til erlenda sérfræðinga til að reisa efnahaginn við? Íslenskum stjórnmálamönnum mun ekki takast það, þeir eru of flæktir í hagsmuni samtryggingarkerfis stjórnmálaflokkanna? Af hverju könnum við ekki viðræður við frændur okkar í vestri um skjól og aðstoð, í skiptum fyrir samstarf og eða hlutdeild í t.d. olíuleitarsvæðum Íslands?
Staðreynd: Íslendingar eiga meiri samleið með þjóðum á Norðurhveli en nokkurri annarri. Hlýnandi loftslag þýðir að norðurleiðin er að opnast og því eiga þ
jóðir á Norðurhveli jarðar meiri samleið með hver annarri . Áætlað er að yfir 200 þúsund Kanadamenn eigi ættir að rekja til Íslands. Kanada lánaði Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum mikið fjármagn í síðustu viku. Hvers vegna beinum við ekki sjónum okkar til Kanada? Kanada er ríkjasamband sem samanstendur af tíu fylkjum og þremur sjálfstjórnarsvæðum, Ísland það fjórða? Kanada er þingbundið lýðræðisríki í Breska samveldinu. Geta Kanadamenn ekki náð að lenda þessari Icesave vitleysu fyrir okkur Íslendinga farsællega?

Ef ekki er samið við stjórn Kanada eigum við að fá erlenda sérhæfða aðila til að stjórna hér næstu 12 ár eða svo og mynda þjóðstjórn. Við veljum fólk sem er ekki í samtryggingarkerfi íslensku stjórnmálaflokkanna. Við gefum út yfirlýsingu vegna skulda íslenskra óreiðumanna erlendis: Á Íslandi varð brotlending efnahags og bankakerfisins vegna gáleysis og spillingar tengdra aðila fram til ársins 2010. Við höfum vikið öllum stjórnmálaflokkum burt og kynnt nýja aðila til stjórnunar vegna sérstæðra aðstæðna á Íslandi. Takið uppí skuldir íslensku einkavinavæddu bankanna eignir þeirra erlendis. Við afhendum nafnalista allra eigenda og stjórnenda einkavinavæddu bankanna til erlendra kröfueigenda. Þá fyrst verða þessir menn látnir borga brúsann og axla ábyrgð gerða sinna. Það mun ekki gerast í skjóli íslenskra stjórnmálaflokka við völd á Íslandi.

Sveinbjörn Ragnar Árnason, 29.10.2009 kl. 11:18

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Mér lýst vel á hugmyndina um að Ísland verði eitt af fylkjum Kanada og er sammála þér að öðru leyti.

Jakob Falur Kristinsson, 31.10.2009 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband