Stórskuldug börn

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þegar ég heyrði í fréttum að Glitnir hefði lánað börnum allt niður í tveggja ára aldur há lán til að kaupa stofnfjárbréf í Byr-sparisjóði.  Margt vafasamt var nú gert í þessum banka, en þetta er það ljótasta sem ég hef heyrt af.  Þar sem öll þessi lán voru ólögleg hefur Íslandsbanki ákveðið að fella þessi lán niður og ekki reyna að innheimta þau.  Birna Einarsdóttir sem er nú bankastjóri Íslandsbanka var áður einn af yfirmönnum hjá Glitnir.  Því vaknar sú spurning hvort lánin séu felld niður barnanna vegna;

Eða vegna Birnu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lán by proxy... skilst að elítan hafi fengið lánin fyrir börn sín.. og þarf því ekki að borga.. og Birna hún heldur djobbinu sínu, náttúrulega

DoctorE 31.10.2009 kl. 11:25

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei það þarf víst ekki að greiða þessi lán og auðvitað heldur Birna sínu starfi.  Þetta er bara smámál af öllum hennar klúðri hjá Glitnir á sínum tíma.

Jakob Falur Kristinsson, 1.11.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband