Samningar undirritaðir

Samningar við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda einstaklinga og heimila og framkvæmd þeirra voru undirritaðir í félags- og tryggingamálaráðuneytinu núna kl 10 og tóku þeir gildi við undirritun.

Er þessi greiðslujöfnun ekki eitt allsherjarklúður, sem fáum gagnast og virðist bara gert til að sýna að eitthvað hafi verið gert.


mbl.is Samningar um úrræði vegna skulda einstaklinga undirritaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég held að svo sé alls ekki. Lykiðatriðið er að lækka greiðslubyrði tímabundið meðan við erum í kreppunni en hækka hana síðan aftur þegar ástandið batnar. Best er að gera það með leið, sem leiðir til sjálfkrafa hækkunar á greiðslubyrði smátt og smátt upp í fyrra horf samhliða og með þeim hraða, sem við náum okkur upp úr kreppunni.

Sigurður M Grétarsson, 31.10.2009 kl. 15:52

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Vonandi hefur þú rétt fyrir þér, Sigurður.  Það jákvæða sem ég sé við þetta er að binda greiðslubyrgði við launavísitöluna.

Jakob Falur Kristinsson, 1.11.2009 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband