Samvinna

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að fela stýrihópi sóknaráætlunar fyrir Ísland að vinna með Mauraþúfunni, aðstandendum þjóðfundarins sem haldinn var 14. nóvember sl., að því að niðurstöður fundarins endurspeglist í sóknaráætluninni. Einnig verði skipaður hópur óháðra aðila til að koma með hugmyndir að því hvernig best verði hlúð að grunngildum Íslendinga í opinberri stjórnsýslu og innan stjórnarráðsins.

Þetta samstarf mun aldrei vera nema í orði, því það sem kom frá Þjóðfundinum samræmist ekki stefnu núverandi ríkisstjórnar.  En auðvitað grípur ríkisstjórnin þetta tækifæri og gerir ályktanir Þjóðfundarins að sínum.  Þótt aldrei verði farið eftir þeim, bara notuð bestu slagorðin sem frá fundinum komu. 


mbl.is Stjórnvöld í samstarf við Mauraþúfuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hrædd er ég um það.  

Helga Kristjánsdóttir, 21.11.2009 kl. 01:58

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Við ráðum miklu um það sjálf hvernig við nýtum og gerum það besta úr öllu sem í stöðunni gæti nýtst til góðs. Það geta allir bætt viðhorf sin og annara verk með jákvæðri umræðu og trú á okkur sjálf til góðra verka og umræðu umfram allt. Við megum ekki missa þá von.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.11.2009 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband