Seðlabankinn

Seta Daniels Gross hagfræðings í bankastjórn Seðlabanka Íslands kostar um 5 milljónir króna á ári. Þetta upplýsti Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag.

Hvar eru nú öll loforðin hjá ríkisstjórninni um að enginn ætti að vera á neinum ofurlaunum.  Erum við Íslendingar orðnir svo aumir að við eigum ekki hæft fólki til að skipa í bankaráð Seðlabankans og þurfum að fá erlent fólk til þess.  Ekki veit ég hvað oft eru haldnir fundir í bankaráði Seðlabankans, en þeir eru örugglega færri en einn á mánuði, sennilega nálægt 10 á ári og þá fær þessi maður um 500 þúsund fyrir hvern fund, sem kannski stendur í einn klukkutíma og er þá Gross með um 500 þúsund í laun  á hvern klukkutíma.

Ansi gott tímakaup.


mbl.is Gros kostar Seðlabanka 5 milljónir á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að þarna sé átt við ferðakostað, gistingakostnað og þýðingar og fleira sem sagt allur kostnaður sem leggst á bankann AUKALEGA á ársgrundvelli vegna setu hans í stjórninni.

Jóhann Elíasson, 27.11.2009 kl. 12:31

2 Smámynd: Egill Helgi Lárusson

Maðurinn vogaði sér að benda á að vextir Icesave samningsins njóti ekki jafnræðis við þá vexti sem Bretar rukka sinn eiginn innistæðutryggingarsjóð. Þá rís pólitíkin upp  og reynir að tortryggja manninn sem mest.

Egill Helgi Lárusson, 27.11.2009 kl. 12:36

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er sama þótt að um heildarkostnað sé að ræða, þá hefði örugglega verið hægt að finna íslending til að sitja í þessu bankaráði, sem hefði kostað mun minna.  Því í raun tekur bankaráðið aldrei neinar sjálfstæðar ákvarðanir, svo ekki þar mikla hæfileika til að sitja í því.

Jakob Falur Kristinsson, 27.11.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband