Sjómannaafsláttur

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra býst ekki við fögnuði sjómannastéttarinnar vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að afnema sjómannaafslátt á næstu fjórum árum. Hann segir hins vegar allt aðrar aðstæður nú í þjóðfélaginu en áður þegar slíkt hefur komið til tals.

Datt Steingrími virkilega í hug að einhver fagnaðarlæti yrðu hjá sjómönnum við þessa skerðingu á launum þeirra.  Það er alveg rétt hjá Steingrími að nú eru allt aðrar aðstæður í þjóðfélaginu en oft áður og því enn brýnna að afnema ekki sjómannaafsláttinn.  Þessi afsláttur af sköttum til sjómanna kom upphaflega til að sanngjarnt þótti að sjómenn, sem ekki nýta sér alla þá samneyslu sem ríkið býður upp á, fengju afslátt af sínum sköttum.  Þetta mun einungis hafa þau áhrif að færri velja sér sjómennsku, sem framtíðar starf og fiskiskipin verða þá flest mönnuð með óvönum sjómönnum.  Sem aftur leiðir til aukinnar slysahættu og þar með aukningu ríkisútgjalda vegna slysabóta.


mbl.is Sjómannastarfið mikið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Gíslason

Nú held ég að ríkisstjórnin sé komin á ystu nöf, við sem alin erum upp í sjávarplásum gerum okkur grein fyrir að sjómen muna aldrei gangast við þessari kjaraskerðingu ó átalið.

Rafn Gíslason, 27.11.2009 kl. 14:13

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei sjómenn munu sigla sínum skipum í höfn og ekki fara aftur á sjó fyrr en hætt verður við þessi áform.

Jakob Falur Kristinsson, 28.11.2009 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband