Annað bréf

Gunnar Sigurðsson, einn þeirra sem hefur skipulagt opna borgarafundi hér á landi, hefur sent annað bréf til Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, þar sem hann fer yfir stöðu mála á Íslandi, aðkomu AGS og Icesave. Eins og áður hefur verið greint frá þá bauð Gunnar Strauss-Kahn á borgarafund. Framkvæmdastjórinn afþakkaði fundarboðið í bréfi sem hann birti á vef AGS.

Er íslenska ríkisstjórnin orðinn svo aum að það þurfi einstakling til að fá upplýsingar frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum.  Í bréfinu er fullyrt að AGS hafi aldrei sett það skilyrði að Icesave-málið yrði leyst áður en sjóðurinn veitti Íslandi aðstoð, heldur hafi það skilyrði komið frá Norðurlöndunum vegna þeirra lána til Íslands.  Ekki trúi ég einu einasta orði sem frá þessum andskotans sjóði kemur, því sjóðurinn ætlaði aldrei að aðstoða Íslendinga í raun.  Heldur sjá til þess að Ísland yrði allt ein fátæktargildra um ókomna framtíð og nota hin Norðurlöndin sem afsökun er lákúra af verstu gerð.  Við eigum nú þegar að afþakka alla aðstoð frá þessum sjóði og skila þeim peningum sem hann hefur lánað okkur.  Við verðum mikið betur sett án aðkomu þessa sjóðs, sem skilur eftir sig slóð af hörmungum og vandræðum allsstaðar þar sem hann hefur komið að málum.  Enda varð fjármálaráðherra Bandaríkjanna að orði þegar hann frétti að Ísland hefði sótt um aðstoð frá þessum sjóði;

Guð hjálpi Íslandi.


mbl.is Sendi nýtt bréf á Strauss-Kahn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband