Þingað fram á nótt

Samþykkt var í atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag, að þingfundur geti staðið fram á kvöld og jafnvel nótt. Nokkrar umræður urðu um tillögu forseta þingsins um kvöldfund en tillagan var loks samþykkt með 30 atkvæðum gegn 17.

Ég held að aldrei í sögu Alþingis hafi meirihlutinn níðst eins mikið á minnihlutanum og núna.  Það er þingfundir frá morgni til kvölds, dag eftir dag.  Þingmönnum ekki einu sinni veitt matarhlé og nú á að bæta næturfundum við.  Í allri þessari umræðu er það viðburður ef einhver stjórnarþingmaður lætur sjá sig í þingsal.  Á meðan þingmenn minnihlutans flytja hverja ræðuna á eftir annarri, sem flest allar eru nákvæmlega eins.  Sefur þingmeirihlutinn sínum Þyrnirósasvefni og vonandi vaknar hann ekki á næstunni.  Það sem ætti að gera núna er að taka upp allar ræður, sem fluttar eru og spila upptökurnar sólahring eftir sólahring og þá geta allir farið heim og borðað og sofið rólega.  En ræðurnar væru fluttar jafnt og þétt eins og áður. 

Þá væri öll vitleysan og ruglið fullkomnað.


mbl.is Þingfundur fram á kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna sést vel "lýðræði" ríkisstjórnarflokkanna í framkvæmd.

Jóhann Elíasson, 30.11.2009 kl. 11:11

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Lýðræði er ekki til á Íslandi og hefur aldrei verið, sama hvaða flokkar hafa verið í stjórn.

Jakob Falur Kristinsson, 1.12.2009 kl. 10:36

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg rétt hjá þér en þótt lýðræði hafi ekki verið til þá eru viss "norm" og reglur sem hafa verið í gildi hingað til.

Jóhann Elíasson, 1.12.2009 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband