Neikvæð orka

Forsetakosningar, sem fóru fram í Rúmeníu í desember, voru um margt óvenjulegar. Nú heldur sá, sem tapaði kosningunum, því fram að aðstoðarmenn andstæðings hans hafi truflað sig með neikvæðri hugarorku í mikilvægum sjónvarpskappræðum fyrir kosningarnar.

Flest dettur nú mönnum í hug þegar afsaka þarf tap í kosningum.  Var ástæðan einfaldlega ekki sú að kjósendur höfnuðu þessum frambjóðanda.  Allt tal um neikvæða orku gerir manninn að athlægi og ekkert skrýtið að svona kexrugluðum frambjóðenda sé hafnað.


mbl.is Segir neikvæða orku hafa kostað sig embættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er þetta ekki bara fullsannað hér á Íslandi?

Ekki efast ég um að afhroð Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum til Alþingis stafaði bara af neikvæðri orku frá kommúnistum!

Og sama ályktun gildir auðvitað um forsetakosningarnar hér gegn um alla sögu. Þar hafa Sjálfstæðismenn gengið berserksgang og bitið í skjaldarrendur í stuðningi sínum við framboð hægri manns.

Þar hefur neikvæð orka kommadindlanna alltaf haft sigur.

Enda hafa sjallarnir haldið því fram í meira en hálfan sjöunda áratug að forsetaembættið eigi auðvitað alltaf að vera "ópólitískt!"

Árni Gunnarsson, 18.1.2010 kl. 16:16

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú sennilega hefur þetta líka skeð á Íslandi.

Jakob Falur Kristinsson, 19.1.2010 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband