Orkuveitan

Nú stendur yfir fundur í borgarráði en meðal þess sem rætt er á fundinum eru fyrstu tillögur stýrihóps um málefni Orkuveitunnar og REI. Jafnframt er rætt um málefni Kvosarinnar.

Ætlar þessi vitleysa aldrei að hætt.  Þetta er orðin svo mikil þvæla að ég er löngu hættur að skilja hvað er að gerast hjá OR, REI, BEI og SVEI eða hvað þetta heitir nú allt saman.  Sumir getað talað saman, aðrir geta ekki tala saman og svo kemur allt í einu álit frá borgarlögmanni um það að borgarráði og borgarstjórn, komi þessi mál hreinlega ekkert við.  Forstjóri OR Hjörleifur Kvaran lætur málsvörn OR byggjast á því að galli sé á málsókn Svandísar Svavarsdóttur og þá ákvörðun ber hann auðvitað ekki undir borgarráð eða borgarstjórn, því þeim kemur málefni OR ekkert við.  Um hvað er svo alltaf verið að funda?  Ég held að komin sé tími til að kalla á Alfreð þorsteinsson til að koma fólki í skilning um hvernig hlutirnir eigi að vera svo vit sé í.


mbl.is Rætt um málefni Orkuveitunnar á fundi borgarráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband