Trabant

 Trabant

Um þessar mundir er liðin hálf öld frá því litli austur-þýski bíllinn Trabant sást fyrst á götum þarlendra borga. Trabant varð með tíð og tíma einskonar tákn fyrir kommúnismann en bíllinn er nú vinsæll safngripur og talið er að um 130 Trabant-aðdáendafélög séu starfandi víðs vegar um heiminn.

Þótt margir hafi gert grín að þessari bifreið fyrst þegar hún kom á markað, voru líka margir sem tóku henni fagnandi.  Þessi bíll skar sig algerlega úr hvað verlag snerti og þótt margt hafi þótt skrýtið í þessari bifreið var hún fyrst og fremst hönnuð með það í huga að fólk kæmist frá A til B.  Þessi bifreið herði mörgum fært að eingast nýja bíl og margir eiga góðar minningar um bílinn.  Hann var einfaldur að allri gerð og var boddý hans svo til allt úr plasti, sem gerði bílinn léttan, eyðslugrannan á eldsneyti og ekki ryðgaði hann.  Ég man t.d. að bensínmælirinn var einföld reglustrika sem stinga varð niður í bensíntankinn og margt var í svipuðum stíl. 


mbl.is Trabant á stórafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef hrúturinn man rétt stofnaði Gunnar heitinn Bjarnason ráðunautur félag Trabanteigenda á níunda áratug sl. aldar. Slagorð félagsins var "Skynsemin ræður". Skyldi það vera enn við lýði?

Hrúturinn 7.11.2007 kl. 16:43

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Alveg örugglega

Jakob Falur Kristinsson, 7.11.2007 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband