Orðaleikur

Er ekki orðið allt í lagi með okkar þingmenn á Alþingi, það virðist ekki vera.  Nú eru þeir á fullu að leika sér að því að finna nýtt orð yfir ráðherra og rökin eru það að ekki sé rétt að kalla konu herra.  Ég er alveg sammála því að kona getur aldrei orðið herra en hún getur verið ráðherra, það er ekki rétt að slíta orðið ráðherra svona í sundur.  Konur eru í auknum mæli að hasla sér völl í störfum sem áður þóttu eingöngu karlastörf og má þar benda á að konur eru í dag starfandi bæði sem flugstjórar, skipstjórar og sýslumenn,alþingismenn,læknar.  Kona hefur verið forseti, eins eru konur bílstjórar, skrifstofustjórar, gjaldkerar, bókarar og margt fleira mætti telja til.  Orðið ráðherra er orðið fast í okkar tungu, hvort við erum að tala um karl eða konu og er ákveðið embættisheiti og enginn með fullu viti þarf að misskilja það þótt kona sé í slíku embætti, við bæði heyrum og sjáum hvort kynið er.  Öll þau orð sem nefnd hafa verið finnst mér fáránlega vitlaus og við getum alveg jafnað mun á milli kynja án þess að fara af stað með svona vitleysu.  Í Guðanna bænum gerið þið nú eitthvað á Alþingi sem er mikilvægara en þessi vitleysa er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Gott innlegg hjá þér Jakob í þessa umræðu, ég er sammála þér

kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 25.11.2007 kl. 12:33

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Jakob mikið er ég sammála þér, þetta er ekkert venjulegt bull í gangi.

Kær kveðja frá gömlum nágranna

Guðrún Jóhannesdóttir, 25.11.2007 kl. 13:10

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega sammála.  Eins gott að það verði ekki næturfundir í þinginu út af þessu kjaftæði.

Jóhann Elíasson, 25.11.2007 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband