Hvert fór Geri?

Kryddpíurnar: Victoria Beckham, Melanie Chisholm, Gerri...  Kryddpíurnar hafa greint frá því að þær hafi verið niðurbrotnar er Geri Halliwell yfirgaf hljómsveitina og að þær séu enn að vinna í því að fyrirgefa henni.

Aumingja manneskjurnar og í hverju skyldi nú öll vinnan liggja, sem þær segjast vera í, til að fyrirgefa Geri Halliwell.  Vonandi tekst það fljótt svo ég geti hætt að gráta, því auðvitað er ég líka niðurbrotinn vegna þessa áfalls.  Maður þolir nú ýmislegt en ekki allt.  Og fá þetta svona rétt fyrir jólin er bara hræðilegt.  Blessuð sé minning hennar. 


mbl.is Niðurbrotnar er Geri fór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tek venjulega ekki eftir gríni á netinu, og get því ekki séð hvort þetta var grín eða ekki. Ef ekki ætla ég að leiðrétta. Geri yfirgaf bandið fyrir einhverjum 8-9 árum. Og þær eru enn að fyrirgefa henni það.En ef þetta var grín þá ætla ég að fela mig aðeins þarna í horninu.

Tinna 28.11.2007 kl. 19:53

2 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það er greinilegt að enn finnast einhverjir sárir yfir því sem gerðist fyrir löngu síðan samanber hana Tinnu hér fyrir ofan.

Ég hinsvegar get skilið af hverju stelpan yfirgaf sveitina á sínum tíma, Victoria Becham getur ekki sungið og Geri gat ekki hugsað sér að vera nálægt svona falsettu

Ólafur Björn Ólafsson, 28.11.2007 kl. 20:59

3 identicon

Ég er ekkert sár, og ég sé ekki hvernig þú fékkst það út. Ég hélt bara að hann væri að misskilja og var að útskýra? Don't jump to conclusions honey...

Tinna 28.11.2007 kl. 21:10

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað er grín og hvað er ekki grín, því verður hver að svara fyrir sig, ég get ekki svarað fyrir aðra en mig sjálfan.

Jakob Falur Kristinsson, 28.11.2007 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband