Hver andsk. er nú þetta

Sæmdarglæpir eru ofbeldisverk gegn konum sem verður að uppræta. Þetta segir félagi í samtökum kvenna af erlendum uppruna í Svíþjóð sem sjálf hefur orðið fórnarlamb sæmdarglæps, en hún flutti erindi um þetta í Norræna húsinu í dag.

Allur andskotinn er nú til "Sæmdarglæpur"hvað er það eiginlega er ekki nóg til af glæpum á Ísland svo við þurfum ekki að flytja inn einhverja kellingu frá Svíþjóð til að reyna að auðga okkar glæpaflóru. 


mbl.is Ekki á að líða sæmdarglæpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæll Jakop, takk fyrir að svara mér í sambandi við líkönin hans Tana.

Jakop sæmdarglæpur verður nú trúlega aldrei framinn á voru fróni, vegna þess að við erum ekki þeirra trúar sem yðka slíkt.

Mín skoðun er sú að við ættum ekki að hafa afskipti af þessu nema að það snerti okkur beint.

Kveðja til Sandgerðis.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.11.2007 kl. 18:47

2 Smámynd: Kristján Magnús Arason

Guðrún, ef múslimum fjölgar eitthvað á Íslandi, þá kemur að því að svona verknaður á sér stað.

Kristján Magnús Arason, 28.11.2007 kl. 20:00

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef múslimar, eða einhverjir aðrir, flytja til Íslands hvað sem líður þeirra hefðum og trúarbrögðum eiga þeir að lúta Íslenskum lögum þetta er nú ekki flóknara en svo.

Jóhann Elíasson, 28.11.2007 kl. 20:01

4 Smámynd: Ásgeir R. Birgisson

Bíddu, myndi þá ekki flokkast undir "sæmdarglæp" ef íslensk kristin fjöldskylda myndi útskúfa dóttir sína ef hún væri lesbía? Eða er það eitthvað annað? Ég hef nefninlega heyrt um það gerist hér á okkar "fagra fróni". Það má segja að það stór hnykkur á vellíðan kvenna (og karla) að vera útskúfuð úr fjöldskyldunni vegna minniháttar hluts eins og kynhneigðar. Eða er þetta bara fyrir múslima? Ef svo er köllum okkar þá "OMG-hún-er-lesbía-glæpur"

Ásgeir R. Birgisson, 28.11.2007 kl. 21:21

5 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Sæmdarglæpur er ekki útskúfunin heldur ýmiss konar verknaður sem framkvæmdur er með skömmina sem afsökun; nauðganir, morð o.þ.h.  Sé það framkvæmt á lesbíum þá er það auðvitað alveg eins.

Það er hins vegar kolrangt að ef konur flytja til Vesturlanda og temja sér vestræna siði þá verði þær fyrrverandi múslimar.  Þetta á aðeins við um öfgamúslima, svona svipað lið og þá kristnu menn í Ameríku sem neita að kenna börnunum sínum þróunarkenninguna.

Það eru öfgar alls staðar.  Við þurfum að taka hart á þeim hvar sem þeir birtast, hvort sem þeir notfæra sér þeirra túlkun á trúarbrögðum eða annað til að réttlæti glæpi sem þeir fremja samkvæmt íslenskum lögum.  Svo einfalt er það.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 28.11.2007 kl. 23:50

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Svo þetta er þá tengt múslímum og þeirra trú, þá tek ég nú bara undir með Jóhanni að þegar slíkt fólk flytur til Íslands hlýtur það að vera að sætta sig við að lúta íslenskum lögum.  Þetta bull hjá Ásgeiri er nú varla skiljanlegt og því ekki svaravert.

Jakob Falur Kristinsson, 28.11.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband