Mjólk

Það er allt á floti í mjólk hjá yfirmanni landbúnaðarmála hjá ESBYfirmaður landbúnaðarmála hjá Evrópusambandinu, Mariann Fischer Boel, biður þýska bændur um að hætta að senda sér mjólk í pósti. Hefur hún fengið um tíu þúsund lítra af mjólk senda og mikið af mjólkinni kemur með almennum pósti heim til hennar.

Af hverju drekkur konan ekki bara mjólkina og hættir þessu væli.  Þetta eru sniðug mótmæli hjá bændum í ESB og ættu íslenskir bændur að gera eitthvað álíka þegar stjórnvöld vilja ekki hlusta á mótmæli þeirra.


mbl.is Ekki meiri mjólk takk fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já þetta er góð hugmynd og ég hef oft velt þessu fyrir mér að meira mark yrði tekið á fiskifræði sjómannsins, ef nokkrum bílförmum af fiski yrði sturtað við inngangin í sjávarútvegsráðuneytið.  Eða gera eins og Frakkar að senda EKG fiskinn í pósti.

Fyrir nokkrum árum fundu fiskifræðingar enga loðnu og fullyrtu að hún væri horfin af fiskimiðunum og engar veiðar leyfðar, en þá skeði sá skemmtilegi atburður að loðnu fór að skola á landi fyrir framan Hafrannsóknarstofnun og þá voru auðvitað leyfðar veiðar.

Jakob Falur Kristinsson, 9.7.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

þetta er ótrúlega góð hugmynd! Ég ætla að senda íslensku bönkunum alla reikninganna mína í póstkröfu..með vertryggingu, vöxtum og öllu saman..

Svo má senda einn líter af íslenskum sjó í plastpoka til sjávarútvegsmála ráðuneytis og Hafró. Eina sardínu með. Skilaboð um að hætta þessu kvótarugli..og svo geta allir atvinnulausir eins og ég fengið vinnu hjá póstinum.

Nóg að gera..

Bara atvinnuskapandi hugmynd..

Óskar Arnórsson, 10.7.2008 kl. 05:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband