Sumar

Sumarið er dásamlegur tími þegar vel viðrar.  Þó er eitt sem fer óskaplega í taugarnar á mér en það er allar þessar garðsláttuvélar og sláttuorf.  Ég sest oft út á svalir þegar gott er veður og reyni að lesa í bók.  En alltaf þegar ég er búinn að koma mér vel fyrir byrja einhverstaðar þessi tæki að hamast og suðið verður yfirþyrmandi.  Þetta er eins og hundrað þúsund radarflugur sé á ferð slík eru lætin.  Auðvitað get ég vel skilið að fólk vilji hafa garða sína vel hirta en öllu má nú ofgera og varla getur verið nauðsynlegt að slá hvern garðblett á hverjum degi til að hafa hann snyrtilegan.  Verst er þetta um helgar, þá eru allir að hamast með sína sláttuvél og sláttuorf svo heilu hverfin nötra undan látunum.  Nú er svo komið að ég fagna orðið hverjum sólarlausum degi og rigning er mitt uppáhald.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband