Mótmæli

Íbúar í húsi SEM-samtakanna við Sléttuveg í Reykjavík hafa sent Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mótmælabréf vegna meintrar mannfyrirlitningar sem fram komi í útboði á „þjónustu við persónulega umhirðu“ 12 mikið fatlaðra einstaklinga.

Nú á allt að leysa með útboðum og þar sem Ísland hefur skipað sér á bekk með þjóðum sem ekki virða mannréttindi, kemur ekki á óvar þótt traðkað sé á mannréttindum 12 mikið fatlaðra einstaklinga.  Þetta er bara stjórnunarstíll núverandi ríkisstjórnar og hún viðurkennir ekki í verki Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og þess vegna er ég ekkert undrandi þótt yfirvöld hafi ekki mikinn áhuga á mannréttindum þessara fötluðu einstaklinga.  Af hverju er verið með þennan feluleik varðandi aldraða og fatlaða öryrkja.  Hafa ráðherrar okkar ekki þann manndóm til að bera að ganga bara hreint til verks eins og Hitler og bara skjóta gamla fólkið og fatlaða öryrkja og leysa málin á þann veg. 

Ég skal verð fyrstur manna til að mæta frami fyrir aftökusveitinni.


mbl.is Mótmæla „mannfyrirlitningu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Neddi

Var það ekki Guðni Ágústsson sem að ætlaði að laga heilbrigðisvandann með því að fækka öldruðum?

Annars er þetta mál alveg hreint lýsandi fyrir sjálfstæðisflokkinn. Allt sem að heitir mannlegt og mannréttindi fá að víkja fyrir hinum almáttuga aur.

Neddi, 29.7.2008 kl. 11:33

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú Guðni missti þetta út úr sér.  Ég er að öðru leyti sammála þér vað varðar Sjálfstæðisflokkinn.

Jakob Falur Kristinsson, 29.7.2008 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband