Tilraunahjónaband.

Aniston og Owen Wilson á hafnaboltavelli í Miami í maí sl.,...Jennifer Aniston og John Mayer ætla að ganga í „tilraunahjónaband.“ Þau hafa verið saman í þrjá mánuði, og eru sögð hafa mikinn áhuga á að láta reyna á sambandið. Fyrsta skrefið í því skyni verður að Mayer flytur inn til Aniston.

Flest er nú til, er þetta nú það nýjasta hjá fræga fólkinu í Hollywood.  Hvað ætli þurfi margar tilraunir áður en fólkið giftir sig, það væri fróðlegt að vita.


mbl.is Aniston og Mayer í „tilraunahjónaband“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Mikið er ég fegin að hafa bara gengið í löglegt hjónaband sem stóð árum saman og mikið er ég fegin að ég gat loksins lokið þeim pakka og byrjað prufa allt annað sem lífið hefur uppá að bjóða  Ævin er svo stutt að við megum ekki staldra of lengi við á sama stað ef við viljum læra eitthvað um allt. Ég er mjög djúpvitur kona

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 30.7.2008 kl. 19:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Getur nokkur sagt mér hvað svona "tilraunahjónaband" stendur lengi yfir?  Ég veit bara ekki hvort ég eigi að vera að eyða tímanum í þetta?

Jóhann Elíasson, 30.7.2008 kl. 23:15

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Mitt hjónaband stóð í rúm 30 ár en lauk síðan í góðri sátt.  En ég verð nú að viðurkenna að í dag sé ég eftir að hafa skilið.  Þótt það sé ágætt að búa einn er samt talsverð viðbrigði að hafa ekki góðan vin og félaga sér við hlið.

Jakob Falur Kristinsson, 31.7.2008 kl. 06:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband