Verslunarmannahelgin búin

Þá er þessari miklu útihátíðarhelgi búin og fólk farið að taka saman sitt dót og örugglega allt rennandi blautt.  Þeir sem ætla að vera bílstjórar á heimleiðinni sitja skjálfandi úr þynnku og drekka gos á meðan aðrir hlaða bílana.  Væntanlegir ökumenn verða að reyna að þrauka daginn og bíða í ákveðin tíma þar til óhætt er að setjast undir stýri.  Nokkuð víst er að margir verða veðurtepptir í Eyjum þar sem allt flug liggur niðri vegna þoku.  Þeir sem eiga pantað far með Herjólfi komast örugglega heim.  Ég ætla líka að vona að margir ökumenn fari ekki of fljótt af stað, því mörgum hættir við að vanmeta hæfni sína til aksturs og þar sem lögregla er vel á verði, er hætt við að nokkur ökuskýrteini lendi í þeirra höndum í dag eða kvöld.

En vonandi komast allir heilir heim að lokum og þá er bara að bíða í eitt ár til að endurtaka leikinn.  Á morgun er venjulegur vinnudagur og samkvæmt venju eru mjög margir veikir þann dag.  En núna þegar mörg fyrirtæki eru að fækka sínu starfsfólki munu flestir pína sig til vinnu að þessu sinni.

Þetta er Ísland í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband