FL Group

Mynd 410388Nýtt myndband hefur verið birt á YouTube um FL Group þar sem ónafngreindir einstaklingar rekja sögu félagsins á árunum 2005-2008 á sinn hátt. Fyrra myndbandið vakti mikla athygli og hafa tugþúsundir skoðað það á youtube.com. Myndbandið er hægt að nálgast hér.

Er ekki allt í lagi að skoða sögu þessa félags, sem er í raun stórmerkileg.  Þetta var fyrst flugrekstur en seinna breytt í fjárfestingarfélag og á örugglega Íslandsmet í taprekstri.


mbl.is Nýtt myndband um FL Group
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Íslandsmet í taprekstri á almenningshlutafélagi og Íslansmet í hagnaði á millifærslu peninga í skúffufyrirtæki sem almenningshlutafélagið er búið að tapa.

Sævar Einarsson, 31.8.2008 kl. 10:21

2 Smámynd: Sævar Einarsson

En svona verða menn ríkir, ég er ekki að réttlæta gjörðir þeirra, en er þetta ekki hið svokallaða frumskógarlögmál sem ræður, einhverjir græða og aðrir tapa.

Sævar Einarsson, 31.8.2008 kl. 10:23

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei þetta er gert af fagmennsku.

Jakob Falur Kristinsson, 1.9.2008 kl. 05:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband