Þjóðkirkjan

Kirkjumálasjóður krefst þess að úrskurðir óbyggðanefndar er varða jarðirnar Valþjófsstað og Hof verði dæmdir ógildir. Byggist aðalkrafa sjóðsins á því að jarðirnar hafi verið úrskurðaðar þjóðlendur að stórum hluta, þrátt fyrir að þinglýst landamerki sýni að þjóðlendukröfurnar hafi verið of víðtækar.

Mér skilst að þessi deila snúist um tvær jarðir, sem eru Valþjófstaður og Hof.  En jörðin Valþjófstaður á vatnsréttindi sem nýtast við Kárahnjúkavirkjun.

Ég hélt að þjóðkirkjan væri til að sinna trúarmálum en ekki að vera í hörku bisness.  Svo man ég ekki betur en að þegar íslenska ríkið samþykkti að greiða laun allra presta í landinu, þá hafi þjóðkirkjan um leið afsalað sér öllum kirkjujörðum og væru þær nú allar í eigu ríkisins.  Er virkilega svo komið hjá þjóðkirkjunni að fjárhagslegi hagsmunir eru settir ofar trúnni.


mbl.is Þjóðkirkjan í mál við íslenska ríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Björnsson

Það er rétt að ríkissjóður er orðinn þinglýstur eigandi að flest öllum kirkjujörðunum gömlu en Kirkjumálasjóður er í sama samkomulagi eigandi að nokkrum prestsetursjörðum. Það eru nú ekki góð skilaboð frá Þjóðkirkjunni að hún gæti ekki að þeim verðmætum sem Kirkjumálasjóði er trúað fyrir. Það væri líka undarleg skilaboð ef kirkjan gengi fram í því að rjúfa samstöðu landeigenda í þessum efnum. Allt það sem fæst af þessu réttindamáli fer beint í það að kosta kirkjulegt starf en það er einmitt helsta verkefni Kirkjumálasjóðs. Megi Guð láta gott á vita.

Kristján prestur í Eyjum

Kristján Björnsson, 9.9.2008 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband