De Code

deCODE lækkaði töluvert í dag.Hlutabréf deCode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, lækkuðu um 18,82% á bandaríska hlutabréfamarkaðinum í dag og er verð þeirra nú 0,69 dalir á hlut og hefur aldrei farið lægra.

Það er alveg ótrúlegt hvað þetta fyrirtæki hefur getað þolað mikið tap á undanförnum árum.  Þar er ekki um neinar smáupphæðir að ræða, nokkrir milljarðar í tap ár eftir ár.  Þetta segir bara eitt, hve vel þetta fyrirtæki hefur verið fjármagnað í upphafi.  Öll svona fyrirtæki verða að vera undir það búin að tapa fyrstu árin.  En svo allt í einu uppgötvast eitthvað og dæmið snýst algerlega við.  Í stað taps kemur stórgróði, sem gæti orðið nokkrir milljarðar á hverju ári ef ekki meira.  Það er því allt of snemmt að afskrifa þetta fyrirtæki.  Þess tími mun koma.


mbl.is deCode aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jakob.

Þett er eitt af undrafyrirtækjunum í heimssögunni,og líklega rétt hjá þér að það eigi eftir að spjara sig. Hver veit?

Þórarinn Þ Gíslason 16.9.2008 kl. 05:56

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Þórarinn, maður verðir að vona það.  Þetta er talsvert stór vinnustaður og mest háskólamenntað fólk, sem ekki væri gott að fá á ríkisjötuna.

Jakob Falur Kristinsson, 16.9.2008 kl. 07:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband