Tryggingasjóður

EF allt fer á versta veg í íslensku efnahagslífi kann að koma til kasta Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Tilgangur sjóðsins er að tryggja innstæðueigendum í íslenskum bönkum og sparisjóðum tryggingavernd.

Í mínum huga er ekkert ef heldur er allt komið á versta veg.  En það er gott að vita af þessum Tryggingasjóði.  Því spurningin er ekki hvort heldur hvenær einhver banki fer á hausinn.


mbl.is Tryggingarsjóður kemur til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eins og "íslenska módelið" er sett upp þá held ég að bankarnir yrðu með síðustu fyrirtækjunum til að verða gjaldþrota. Þeir eiga hvort eð er öll hin fyrirtækin og myndu láta þau rúlla á undan til að forðast skellinn sjálfir.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.9.2008 kl. 10:12

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er bara spurning hvað bankarnir þola mörg gjaldþrot hjá fyrirtækjum sem þeir hafa kannski fjármagnað að fullu.

Jakob Falur Kristinsson, 19.9.2008 kl. 10:45

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einmitt, á næstunni mun koma vel í ljós hvaða fyrirtæki eru innundir hjá bankastjórunum (þau sem verður "reddað") og hver úti í kuldanum (þau sem verða látin rúlla)...

Guðmundur Ásgeirsson, 19.9.2008 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband