Frjálslyndi flokkurinn

Nú hef ég verulegar áhyggjur af mínum ágæta flokki og slæmt þegar þingmenn eru farnir að deila í fjölmiðlum.  Ég er núna farinn að trúa orðum Margrétar Sverrisdóttur sem hún sagði um inngöngu hópsins frá Nýju afli undir forustu Jóns Magnússonar.  Margrét sagði á sínum tíma að þessi hópur ætlaði sér að yfirtaka flokkinn.  Það virðist vera að koma á daginn núna þegar flokksmenn í Reykjavík eru farnir að krefjast að Jón Magnússon fái meiri völd innan flokksins og sumir vilja jafnvel gera hann að formanni.  Ég er daglega í sambandi við fjölda fólks og allir tala um að hætta að styðja flokkinn vegna þessara átaka.  Ég hef verið í þessum flokki frá stofnun hans og tel að við hefðum betur hlustað á varnaðarorð Margrétar Sverrisdóttur varðandi inngöngu hópsins úr Nýju afli, sem virðast vera að rætast núna.  Ég er ákveðinn í því að ef gerð verður atlaga að þeim Guðjóni Arnari Kristjánssyni og Kristni Gunnarssyni til að auka völd Jóns Magnússonar, þá ætla ég ekki að starfa meira fyrir þennan flokk.  Jón Magnússon er bara óbreyttur þingmaður fyrir flokkinn og á ekki að vera neitt annað.  Rætur flokksins hafa alltaf verið sterkastar á Vestfjörðum og ef fara á að berja á þeim tveimur þingmönnum sem þaðan koma þá verða það endalok þessa ágæta flokks.  Það liggur við að ég sé farinn að trúa því að Jón Magnússon og hans liðsmenn hafi gengið í flokkinn til að eyðileggja hann.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég held að þú sért á stórhættulegri braut, trúandi Margréti Sverrisdóttur, það er ekki að gera sig, held ég.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.9.2008 kl. 20:49

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var ekki að meina að ég trúi öllu sem Margrét segði, en ég tel hana hafa haft rétt fyrir sé hvað varðar Nýtt Afl og Jón Magnússon.

Jakob Falur Kristinsson, 20.9.2008 kl. 06:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband