Að verða ríkur trillukarl

Ég skrifaði fyrir stuttu frásögn af einni sjóferð sem ég og sonur minn fórum haustið 1994 á 6 tonna trillu.  Þá voru veiðar báta undir 6 tonnum frjálsar að miklu leyti, einu takmarkanirnar voru að ekki mátti róa í desember og janúar og síðan varð að stoppa aðra hverja helgi.  Þess vegna urðum við að stoppa róðra 30. nóvember 1994 en máttum byrja aftur 1. febrúar 1995.  Þar sem veðurfar er mjög erfitt á Vestfjarðamiðum yfir veturinn, tókum við þá ákvörðun að fara suður í Sandgerði með bátinn og róa þaðan.  Við fengu leigt einbýlishús í Garðinum og komum suður um miðjan febrúar öll fjölskyldan.  Þar sem mikil þrengsli voru í höfninni í Sandgerði var nokkuð ljóst að við myndum þurfa stöðugt að fara og líta eftir bátnum.  Því var ákveðið að róa frá Keflavík og fengum við leigða aðstöðu fyrir bátinn í smábátahöfninni í Grófinni og þurftum þar af leiðandi aldrei að líta neitt sérstaklega eftir bátnum, auk þess sem við gátum tengt landrafmagn og því var alltaf hiti um borð þegar við fórum í róður.  Öllum aflanum var landað á Fiskmarkað Suðurnesja og var ágætis aðstaða til löndunar í smábátahöfninni.  Ef gott var veður var algengt að fólk úr Reykjavík kæmi í sunnudagsbíltúr þarna suður eftir.  Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við vorum að landa seinnipart sunnudags.  Ég var uppi á bryggjunni og stjórnaði löndunarkrananum en sonur minn var um borð, þá kemur bíll og stoppar rétt hjá og út úr honum koma hjón á besta aldri.  Þau horfðu á meðan við hífðum upp hvert fiskikarið eftir annað og á bíl frá fiskmarkaðnum.  Þegar löndun var lokið og ég að ganga frá krananum kom maðurinn og ræddi við mig.  Hann spurði hvað ég teldi að þetta hefði verið mikill afli og ég sagði honum að það væri sennilega um fjögur tonn og þegar hann spurði mig af hverju við værum á sjó á sunnudegi sagði ég honum að við nýttum alla daga sem hægt væri að róa vegna veðurs.  Þá spurði hann hvaða verð við værum að fá fyrir aflann og ég sagði að undanfarið hefði það verið að meðaltali um 100 krónur á kíló (1995).  Þegar hann síðan spurði hvað við værum margir á bátnum sagði ég honum að við værum bara tveir og ættum bátinn sjálfir.  Maðurinn gapti og sagði undrandi; "Ert þú að segja mér að þið hafið í dag fiskað fyrir um 400 þúsund."  Ég sagði honum að það væri sennilega mjög nálægt því.  Þá fór maðurinn að reikna og sagði; ið getið sem sagt róið 7 daga vikunnar og ef við margföldum þennan dagsafla með 7 þá gerir vikan samtals kr. 2,8 milljónir og þið eruð bara tveir sem geri 1,4 milljónir á mann eða um 5,6 milljónir á mánuði."  Ég sagði að það gæti passað ef allir róðrar væru eins og þessi og engar frátafir frá veiðum.  Ég var ekkert að upplýsa manninn um að á móti kæmi talsverður kostnaður eins og olía,beita, veiðarfæri, vinna við að stokka línuna upp í landi og greiðslur af lánum.  Maðurinn gekk í burtu og í átt að konu sinni og ég heyrði hann segja við hana; "Þetta er ævintýri mennirnir hafa yfir 5 milljónir á mánuði í laun, þeir hljóta að vera moldríkir, ég ætti að athuga eitthvað svona sniðugt."  En sannleikurinn var sá að ekki söfnuðum við neinum auðævum á þessari trilluútgerð og hættum henni endanlega í ársbyrjun 1996 og seldum bátinn og rétt sluppum skaðlaust frá þessari útgerð.  En það er auðvelt að reikna sig mjög auðugan ef menn nenna að leika sér að tölum og miða alltaf við bestu forsendur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Maður kannast við það.

Sigurður Þórðarson, 13.11.2008 kl. 01:24

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

trillur og smábátar 1994 eru ekki það sama og í dag. yfirbyggðir með beitninga vélum og eru nánast á við litla báta í veiðigetu. allt að 500 hestafla vélar og annað. 

þetta voru nú orðnir ekki neinir smábátar undir það síðasta. þetta voru og eru öflug veiðiskip með gríðarlega getu til sjósóknar. 

þetta vitið þið báðir. 

Fannar frá Rifi, 13.11.2008 kl. 09:29

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Minn maður var sjómaður yfir 20 ár, og er þér innilega sammála.  Alltaf var horft á laun sjómanna út frá "bestu forsendum"!  Botna ekkert í því sjálf afhverju við erum þá ekki moldrík í dag.

Sigríður Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 22:28

4 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Já að þú skulir ekki vera milli? Ætli það sé ekki svipað með sjómenn og bændur þeir hafa alltaf verið"afvætur" á Íslandi. Það segja allavega þeir sem ekki þekkja til.  Ekki finnst mér bankakerfið hafi skilað meiru í þjóðarbúið þegar upp er staðið. Ég tel sjómenn og bændur báða með því nauðsynlegasta sem Ísland á, geri ekki upp á milli, enda er ég kominn af bændum (var sjálf bóndi,) og sjómönnum og skammast mín ekki neitt fyrir það. Kvitt og kveðja.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 15.11.2008 kl. 18:20

5 Smámynd: Marta smarta

Einmitt.  Gleymist að margfalda ekki með 365.

Einu sinni fórum við ég og sá fyrrverandi til Edinborgar að hausti og bara gaman, versluðum fyrir börnin og okkur og jólin og allt þetta.

Búin að vera heldur léleg tíð undanfarið, bóndinn var reyndar stýrimaður  sem þótti nú nokkuð gott upp á hlut að gera.

Þegar við komum heim eftir 5 daga frí hjá honum hafði fiskast þvílíkt að ég verð ennþá rík í huganum að hugsa um það.     Þar varð afleysingamaðurinn ríkur!!    Minn fyrrverandi var nú samt ekkert lélegur stýrimaður, svona er bara sjómannslífið.   Mottóið er:  Sjómenn verða bara ekkert ríkari en aðrir, bara meira veðurbarðir, og svo er voða gaman þegar þeir koma heim af sjónum.     Reyndar líka þegar þeir fara aftur út, en það er nú önnur saga.    Ekki ofmeta það sem sjómaðurinn ber úr býtum, hann vinnur sko fyrir því.

Marta smarta, 16.11.2008 kl. 23:52

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll Jakob minn

Fólk er greinilega úti að aka í orðsins fyllstu merkingu.

Ef það vissi nú um allan kostnaðinn. Ekki nóg að vita brúttó tölurnar.

Hlakka til að sjá þig skrifa um blessanir í lífi þínu.

Þú ert ríkur að eiga hraut börn, tengdabörn, barnabörn og ýmislegt fleira ágætt hefur þú upplifað eins og þú hefur aflað þér menntunar sem er alveg frábært.

Vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.11.2008 kl. 01:13

7 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Fannar, það er alveg rétt hjá þér að margir þeirra báta sem flokkaðir eru sem smábátar í dag eru orðnir öflugir bátar og tæp 15 tonn að stærð og með mjög mikla veiðigetu.  Mér var það fullkunnugt þegar ég skrifaði greinina en ég var að skrifa um smábát 1995 sem var Gáski 800.  Það má líka benda á að þessir nýju 15 tonna yfirbyggðu smábátar með beitningavélum kosta líka mikið eða um 70-10 milljónir og þá er eftir að kaupa veiðiheimildir fyrir a.m.k. 500-1000 milljónir ef hægt á að gera út af krafti allt árið.  Ég öfunda engan af því að gera slíkan bát út í dag.

Jakob Falur Kristinsson, 17.11.2008 kl. 10:51

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob.

Þú stendur þig vel og við komu sko ekkert að tómum kofanum hjá þér í sambandi við fiskveiðar og hvort sé um að ræða trillur eða bara einhverjir smá dallar.

Það var gaman að fara á sjó með pabba í denn og fiska en ég er samt landkrabbi og í eitt skiptið vorum við hér inná firðinum og mér leið illa því það var undiralda.

Það komu tveir menn á öðrum bát til okkar að spjalla. Pabbi sagði mér að ég yrði að fara niður í lúkar ef ég þyrfti að æla. Ég myndi nú ekki láta mennina sjá mig æla.

Ég var með í för er við veiddum stærðarinnar lúðu. Pabbi var mjög ánægður að ég skildi hafa verið með. Við feðgin vorum greinilega fiskin.

Vertu Guði falinn.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.11.2008 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband