Vöruverð

 Neytendasamtökin lýsa eftir lækkun á vöruverði í verslunum hér á landi og segja, að með hækkandi gengi hefði verð á innfluttri vöru átt að lækka. Það hafi hins vegar ekki gerst.

Hvernig á að vera hægt að lækka vöruverð þegar gengið hefur fallið svona mikið og verðbólgan er 18% og vextir himinháir.  Það væru einhverjir kraftaverkamenn sem gætu lækkað vöruverð í slíku ástandi og nú er.  Þótt gengið hafi hækkað örlítið síðustu daga er það svo lítið á móti hinu mikla gengisfalli sem varð í haust.


mbl.is Lýsa eftir lækkun vöruverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held nú að fólk verði að gefa verslunum tíma til að átta sig á hlutum.

Þó gengi breytist einn daginn, þá hlaupa menn nú ekki til og lækka, sérstaklega ef lager er stór, og keypyur á hærra gengi.

En auðvitað eiga verslanir að lækka ef gengislækkun er viðvarandi !

Birgir Guðjónsson 25.2.2009 kl. 15:59

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Blessaður og takk fyrir að vilja mig sem bloggvin. Man enþá eftir friðsælum morgnunum á Bíldudal þegar maður rölti niður á bryggju um fimm leytið til að ræsa vélarnar í Sölvanum fyrir brottför. Það er nokkuð ljóst að þó gengi fari aftur í það sama lækkar vöruverð aldrei jafnmikið það er lögmál kapitalismans því miður

Jón Aðalsteinn Jónsson, 25.2.2009 kl. 23:20

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já varst þú vélstjóri á Sölva Bjarnasyni BA-65, en ég var einmitt útgerðarmaður hans og framkvæmdastóri frystihússins.  Það er rétt að lög mál kapítalismans breytast aldrei.

Jakob Falur Kristinsson, 26.2.2009 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband