Nýliðun á Alþingi

Mikið er rætt um nauðsyn þess að mikil nýliðun verði á Alþingi eftir næstu kosningar.  Einn af þeim sem gala hæðst er Jón Baldvin Hannibalsson, sem vill verða formaður Samfylkingarinnar og ætlar að bjóða sig fram gegn Ingibjörgu Sólrúnu á næsta landsfundi.  Ég er alveg sammála því að gott væri að fá nýja þingmenn með nýja hugsun á Alþingi.  En Jón Baldvin er nú orðin 70 ára og honum fylgir enginn ný hugsun.  Það verður skrautlegt Alþingi ef öll endurnýjun verður með því að láta yngra fólkið víkja og fá ellilífeyrisÞega í staðinn.  Það er nauðsynlegt að hafa þetta blandað ungt fólk með nýja hugsun og þingmenn með reynslu.  Ég vona að þetta brölt Jóns Baldvins renni út í sandinn.  Hann er ekki alveg saklaus af því ástandi sem nú er, því það var Jón Baldvin sem leiddi Davíð Oddsson til valda á Íslandi með Viðeyjarstjórninni frægu og undirbjó jarðveginn fyrir Framsókn að komast til valda og frá 1991 þegar Viðeyjarstjórnin var stofnuð hefur spilling verið hér landlæg.  Ég horfði í gærkvöld á þáttinn um bandaríska fyrirtækið ENRON og þá áttaði maður sig á því hvar útrásarvíkingarnir okkar lærðu sín fræði.  Það var margt líkt með ENRONog mörgum íslenskum fyrirtækjum.  Framtíðar hagnaður var bókfærður strax og viðskiptavild (goodwill) var orðin hjá sumum ein helsta eignin.  En Jón Baldvin á þing núna.  Nei takk.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband