Framsókn

Sigurður Ingi Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir í Syðra-Langholti verður í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti.

Þarna er eitt dæmið enn sem sitjandi þingmaður verður að víkja fyrir nýjum aðila.  Því ekki á ég von á að Framsókn fái nema einn þingmann í þessu kjördæmi, þegar bæði Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson eru ekki í baráttunni.  Það er því útlit fyrir að mikið af nýjum þingmönnum komi á Alþingi eftir kosningar.


mbl.is Sigurður Ingi í fyrsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég efast um það.  Hélt að hún næði fyrsta sætinu, en sjálfsag er flokkseigendafélagið búið að ákveða þetta allt fyrir fram og prófkjör bara til að sýnast og blekkja fólk.

Jakob Falur Kristinsson, 8.3.2009 kl. 15:37

2 identicon

Sæll Jakop

Hvað meinarðu með flokkseigendafélagið ? Nú voru þetta lýðræðislegar póstkosningar og í einu og öllu farið eftir því sem fólk kaus. Ég hef fulla trú á því að Sigurður og Eygló komist bæði áfram og jafnvel Birgir líka.

Eiríkur 8.3.2009 kl. 16:01

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það eru þau öfl sem hafa hingað til stjórnað öllu hjá Framsókn.  Það má þakka fyrir ef flokkurinn fær einn mann kjörinn í þessu kjördæmi.

Jakob Falur Kristinsson, 8.3.2009 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband