Ný skoðanakönnun

Nú hefur verið birt ný skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna.  Það sem vekur athygli er að enn mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með yfir 30%.  Næst koa svo VG með um 27% og Sjálfstæðisflokkurinn, sem alltaf hefur verið stærstur er nú í 3. sæti með um 26%.  og Framsók er svo með um 7%.   Þetta hlýtur að valda fulltrúum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins miklum áhyggjum.  Það skyldi nú ekki vera að stefnan í Evrópumálunum ráði þarna einhverju?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég myndi halda að framkoma þeirra undanfarnar vikur ætti eitthvað í því að fólk er farið að sjá þá eins og þeir eru, en ekki eins og þeir hafa þóst vera hingað til.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2009 kl. 11:35

2 identicon

Ekkert að marka skoðanahannanir kratanna á Fréttablaðinu og stöð2 ný skoðanak í morgun

JK 27.3.2009 kl. 11:44

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Skoðanakannanir sem sína svipað viku eftir viku hljóta að vera marktækar.  Svo hefur sagan sýnt okkur að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf mælst hærri í skoðanakönnunum en í kosningum.  Þetta er alveg öfugt við Frjálslynda flokkinn, sem fær alltaf meira í kosningum en fram hefur komið í skoðanakönnunum.

Jakob Falur Kristinsson, 27.3.2009 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband